133. löggjafarþing — 80. fundur,  28. feb. 2007.

fólksfækkun í byggðum landsins.

562. mál
[13:16]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni L. Möller fyrir þessa fyrirspurn og um leið vil ég nefna að það er dálítið hastarlegt að þessi umræða skuli öll lenda á núverandi hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, því að hann er nýkominn til leiks og kannski þolandi í reynd aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar sem hann situr í. En í raun er ekki við annan að tala og þannig er það.

Staðreyndin er einfaldlega sú að þær miklu atvinnuháttabreytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum árum hafa kippt stoðum undan mörgum byggðarlögum hringinn í kringum landið. Á móti er ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki gert neitt sem máli skiptir hvað varðar að byggja upp samgöngukerfi og fjarskiptakerfi. Það er það sem verður að koma inn þannig að umrædd byggðarlög fái ný tækifæri (Forseti hringir.) til að bregðast við þeirri þróun sem átt hefur sér stað og það er (Forseti hringir.) það sem við viljum sjá, virðulegi forseti. Við viljum sjá aðgerðir en ekki greiningar.