133. löggjafarþing — 80. fundur,  28. feb. 2007.

fólksfækkun í byggðum landsins.

562. mál
[13:22]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Það er margt óþarft sem sagt er í þessari umræðu og ýmis misskilningur uppi eins og gengur, en ég held að fyrirspurnin sé alveg eðlileg og þarfleg. Ég skildi fyrirspurnina þannig að spurt væri um eitt tiltekið, skilgreint verkefni og ég svaraði um það. Vinna er ekki að fara í gang í því núna heldur fór hún í gang þegar í haust þegar sumarleyfum var lokið í Byggðastofnun og ég fullyrði að mikill áhugi er á þessum málum meðal starfsmanna iðnaðarráðuneytisins, þeim sem við þessi mál starfa og þeir vinna að þeim af miklum metnaði og áhuga.

Það er einfaldlega þannig að ný greining er ákvörðun Alþingis og þar af leiðandi er unnið að henni samkvæmt því. Samkvæmt upplýsingum mínum hefur Byggðastofnun mannskap, fjármagn og aðstöðu til að vinna þetta verkefni og eins og einn hv. þingmaður sagði í umræðunni er vitað töluvert um viðfangsefnið þó að óskað sé formlegrar greiningar, m.a. til að grafast vel fyrir um hugmyndir heimamanna á hverju svæði. Mikilvægt er að hafa heimamenn með í verkinu og að forusta þeirra sé sem allra víðtækust í þessum málum, eins og áður hefur komið fram.

Ég fullyrði að miklar fjárhæðir og margvíslegar aðgerðir eru í gangi í byggðamálum og ég geri ekki lítið úr hlutverki vaxtarsamninganna. Ég hef mikla trú á að þeir muni skila okkur áfram verulegum árangri til framtíðar litið.