133. löggjafarþing — 80. fundur,  28. feb. 2007.

hækkun raforkugjalda.

563. mál
[13:24]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Kristján L. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég leyfi mér að leggja fram fyrirspurn til hæstv. iðnaðarráðherra um hækkun raforkugjalda sem hljóðar svo:

Hvernig hyggst ríkisstjórnin koma til móts við íbúa dreifbýlis vegna stórhækkunar raforkugjalda í framhaldi af setningu nýrra laga um raforkumál?

Virðulegi forseti. Ég hef áður spurt um það í ræðustól Alþingis í óundirbúinni fyrirspurn til hæstv. iðnaðarráðherra hvað ríkisstjórnin hyggist gera vegna þeirra miklu hækkana sem dundu á fólki í dreifbýli við raforkulagabreytinguna sem varð 2005. Þá var ekkert svar en sagt að verið væri að vinna að málinu.

Virðulegi forseti. Í umræðum um frumvarpið um jöfnun raforkukostnaðar sem var svo fagurt, með svo fögur fyrirheit, sagði fyrrverandi hæstv. iðnaðarráðherra, m.a. þegar fjallað var um þetta mál, um það hæsta gjald sem gæti orðið á dreifbýlisgjaldskrársvæðum, með leyfi forseta:

„… að raforkukaupendur á dreifbýlisgjaldskrársvæðum þurfi ekki að greiða hærra gjald fyrir dreifingu raforku en sem nemur hæsta gjaldi almennra gjaldskráa dreifiveitna eftir að tillit hefur verið tekið til niðurgreiðslna.“

Síðan kom, virðulegi forseti, með frumvarpinu eins og endranær kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytis og samkvæmt henni og gögnum Orkustofnunar var áætlað að árlegur kostnaður við jöfnun dreifingarkostnaðar yrði 230 millj. kr. á þessum dreifbýlisgjaldskrársvæðum.

Síðar segir, með leyfi forseta:

„Sú jöfnun dreifingarkostnaðar raforku sem felst í frumvarpinu er mikilvæg til þess að jafna búsetuskilyrði í landinu.“

Virðulegi forseti. Ég tel fulla ástæðu til að segja þetta aftur vegna þess að þetta eru orð sem ég get alveg tekið mér í munn og hefði gjarnan viljað hafa sagt sjálfur en vek athygli á því að það var hæstv. fyrrverandi iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, sem sagði þessi orð:

„Sú jöfnun dreifingarkostnaðar raforku sem felst í frumvarpinu er mikilvæg til þess að jafna búsetuskilyrði í landinu.“

Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að leggja þessa fyrirspurn fram vegna þess að í gögnum sem alþingismenn hafa verið að fá frá fólki í dreifbýli, þar á meðal bændum, er eitt hið svakalegasta dæmi sem ég hef fengið austan af landi þar sem viðkomandi íbúi hefur mátt þola 60% hækkun á húshitunarkostnaði frá því að þetta var gert.

Ég spyr því hæstv. iðnaðarráðherra: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera til að jafna og dreifa þessu vegna þess að það var ekki tilgangur laganna að ráðast svona á fólk í dreifbýli eins og ég hef gert að umtalsefni. Þau orð sem ég vitnaði til sem hæstv. fyrrverandi iðnaðarráðherra sagði hafa engan veginn gengið eftir. Lögin hafa ekki orðið til þess að jafna búsetuskilyrði í landinu heldur þvert á annan veg, það er verið að gera þetta enn þá verra. Því er þessi spurning, virðulegi forseti, sett fram. Hæstv. iðnaðarráðherra sagði í (Forseti hringir.) óundirbúinni fyrirspurn að þetta væri í gangi og (Forseti hringir.) nú er spurt: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera nú á sínum síðustu dögum?