133. löggjafarþing — 80. fundur,  28. feb. 2007.

bótaskyldir atvinnusjúkdómar.

611. mál
[14:05]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Guðjón Ólafur Jónsson) (F):

Hæstv. forseti. Á hverju ári berast til Vinnueftirlitsins milli 5 og 20 tilkynningar um atvinnusjúkdóma eða meinta atvinnusjúkdóma. Tilkynning um atvinnusjúkdóm á samkvæmt lögum að berast frá þeim lækni sem greinir starfsmanninn. Í dag háttar þannig til að læknir sem skoðar sjúkling vegna atvinnusjúkdóms hefur engin viðmið í reglugerð sem segi til um eftir hvaða skilmerkjum greina skuli atvinnu- eða atvinnutengda sjúkdóma.

Áður fyrr var í gildi reglugerð nr. 221/1939, um atvinnusjúkdóma, en sú reglugerð hefur verið felld úr gildi. Ég vek athygli hv. þingmanna á ákvæðum 4. og 5. mgr. 22. gr. laga um almannatryggingar sem fjalla um slysatryggingar en í 4. mgr. segir: „Til slysa teljast sjúkdómar er stafa af skaðlegum áhrifum efna, geislaorku eða öðru hliðstæðu sem ríkjandi eru í hæsta lagi fáeina daga og rekja verður til vinnunnar.“

Síðan segir í 5. mgr.:

„Ákveða skal með reglugerð að tilteknir atvinnusjúkdómar skuli teljast bótaskyldir samkvæmt þessum kafla.“

Þetta ákvæði er í samræmi við evrópskar leiðbeiningar nr. 90/326 frá Evrópusambandinu en því miður hefur þessi reglugerð ekki verið sett.

Ég vek athygli á því að Vinnueftirlitið útbjó á árinu 2005 lista sem notaður er til viðmiðunar við greiningu atvinnusjúkdóma. Þetta er í sjálfu sér lágmarkslisti en mörg Evrópulönd nota mun víðtækari skilgreiningar. Ef þessi listi yrði notaður hér á landi má ætla að tilkynningar um atvinnusjúkdóma yrðu um 300 talsins þó að bótaskyld tjón yrðu væntanlega nokkru færri.

Ég tel nauðsyn á því að þessi reglugerð um bótaskylda atvinnusjúkdóma verði sett hið fyrsta og tel í þeim efnum heppilegt að nota viðmiðanir frá Evrópusambandinu, eða Alþjóðavinnumálastofnuninni sem er að vísu mun víðtækari. Í slíkri reglugerð yrðu væntanlega að vera ákvæði um séríslenska sjúkdóma eins og t.d. kúfisksótt þannig að það yrði gætt að staðbundnum sjúkdómum sem hér ríkja.

Þess vegna hef ég á þskj. 911 lagt fram fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um hvað líði setningu reglugerðar um bótaskylda atvinnusjúkdóma, sbr. 5. mgr. 22. gr. laga nr. 117/1993, um almannatryggingar.