bólusetningar gegn leghálskrabbameini.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka góð viðbrögð hér. Ég vil taka fram að mér finnst mjög mikilvægt að sóttvarnaráð skoði málið líka með tilliti til kostnaðarins. Þó að alltaf sé erfitt að blanda kostnaði inn í umræður um mál af þessu tagi getum við ekki vikið okkur undan því. Við erum að taka inn núna ný krabbameinslyf, ný lyf gegn sjúkdómi í augnbotnum o.s.frv. Þetta eru mjög dýr lyf en hafa mikil áhrif á líf og geta bætt lífsgæði. Ég vil t.d. nefna að augnbotnalyfin, sem við erum að láta skoða núna og eru í ferli í kerfinu, kosta líklega 1,4 milljónir á ári fyrir einn sjúkling og meðferðin tekur að lágmarki tvö ár. Það þarf því alltaf að vega inn kostnaðinn á móti. Væntanlega mun sóttvarnaráð líka skoða hvort hugsanlega verði um valkvæða þjónustu að ræða og hvort kostnaðarhlutdeild eigi að vera einhver.
Mér finnst þetta spennandi mál og hef því falið sóttvarnaráði að kanna kostnaðarhagkvæmni og setja fram tillögur í framhaldi af því.