133. löggjafarþing — 82. fundur,  28. feb. 2007.

tollkvótar við innflutning landbúnaðarafurða.

621. mál
[16:27]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Hér er enn einn hlekkurinn í þeirri keðju að lækka vöruverð sem tekur gildi á morgun. Við erum með þessu að auka innflutning á erlendum landbúnaðarvörum með sérstöku samkomulagi sem gert hefur verið við Evrópusambandið. Það þekkja þeir sem þekkja hagfræði að aukið framboð lækkar verðið. Það kom ekki fram í umræðunni áðan. Aukið framboð á vörum innan lands, landbúnaðarvörum, lækkar verðið í heild sinni og það er það sem aðgerðin á að gera. Ekki liggur fyrir hvað lækkunin verður mikil en það verður lækkun. (Gripið fram í: Ég segi já.)