133. löggjafarþing — 83. fundur,  1. mars 2007.

þjónustusamningur við SÁÁ – virkjunarframkvæmdir í neðri Þjórsá.

[10:48]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að þakka hv. þm. Valdimar Leó Friðrikssyni fyrir að taka upp málefni SÁÁ og meðferðarmálin hér.

Í dag, 1. mars, eru að ég held 19 ár síðan bjórinn var leyfður, þetta er svokallaður bjórdagur. Það er ágætt að minnast þeirra tímamóta m.a. með því að líta yfir það hvernig staðan er, hver er árangurinn af meðferðar- og vímuefnastefnu okkar? Það er algjörlega augljóst að neysla á áfengi og öðrum fíkniefnum á Íslandi er að mörgu leyti eins og faraldur á undanförnum árum. Það er ekki út af bjórnum endilega sem slíkum, það er út af ýmsu. Við höfum brugðist, árangurinn er lakur og það er í raun og veru alveg með ólíkindum að SÁÁ skuli þurfa á hverju einasta ári að taka pólitískan slag við ríkisstjórnina fyrir lífi sínu og áframhaldandi starfi ár eftir ár þegar árangur þeirra er jafnafburðagóður og hann nú er, eins og nefnt var í umræðunni áðan, það eina sem heldur aftur af þeim er í rauninni að framlög til þessara mála eru allt of lág. Það eru allt of litlir peningar settir í forvarnir og meðferðarúrræði því eina leiðin til að berjast gegn aukinni neyslu fíkniefna og áfengis er að bjóða upp á öflug meðferðarúrræði og öflugar forvarnir. Hertar refsingar eru ekki rétta leiðin, þetta er rétta leiðin í þeirri baráttu.

Það er illa staðið að þessum málum. Það er fáránlegt að fulltrúar SÁÁ séu sendir í pólitíska bardaga á hverju einasta ári þegar stofnunin er að sinna einu af mikilvægustu verkefnum heilbrigðisþjónustunnar sem ríkisvaldið hefur í rauninni úthýst og sinnir ekki sjálft með neinum verulegum hætti. Það er ástæða til að brýna hæstv. heilbrigðisráðherra til að taka hressilega á þessu máli af því að það er ámælisvert í hvaða stöðu áfengis- og fíkniefnamálin eru hérna. Það eru allt of litlir fjármunir settir í þetta enda er árangurinn lakur og (Forseti hringir.) háleit markmið fyrri ára svo óra-, órafjarri raunveruleikanum.