breyting á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég hef alveg skilning á því að hæstv. ráðherra geti ekki svarað í smáatriðum hver áhrifin verða á íslenska löggjöf ef Alþingi ákveður að fallast á að innleiða þessa reglugerð. Mér finnst samt nauðsynlegt að ráðherrann geti sagt þinginu frá því hvaða helstu breytingar Alþingi þarf að gera á gildandi löggjöf. Það er verið að biðja Alþingi að fallast á að samþykkja þessa þingsályktun sem felur í sér skuldbindingu um að breyta lögum í samræmi við þær gerðir sem hér eru undir og því er ekki lýst í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni hvaða breytingar í aðalatriðum þurfi að gera á lögunum. Mér finnst eiginlega eðlileg krafa til ráðherra að hún geti lýst því í aðalatriðum hvaða breytingar þurfi að gera á gildandi lögum. Þessi tilskipun fjallar um mjög áhugavert efni, um neytendavernd, og mér finnst einmitt mjög þarft að taka á þeim málum, sérstaklega í ljósi þess hvernig bankarnir hafa ástundað viðskiptahætti sína gagnvart lántakendum. Það er full þörf á því að setja löggjöf sem dregur úr möguleikum bankanna til að binda viðskipti einstaklinga við þá tilteknum skilyrðum eins og við þekkjum.