skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn.
Frú forseti. Hugsanlega tók ég ekki nægilega vel eftir þegar hæstv. ráðherra var að flytja mál sitt áðan. Ég gat ekki betur á honum heyrt en rannsóknin sem hrinda á af stað samkvæmt því frumvarpi sem hér er lagt fram til umræðu eigi fyrst um sinn einungis að beinast að einni stofnun, Breiðavík. Ég tel hins vegar að rannsókn af þessu tagi eigi ekki að einskorðast við stofnanir sem eingöngu höfðu börn og unglinga innan sinna vébanda.
Það hefur komið fram að allt bendir til þess að einstaklingar sem voru undir lögaldri þ.e. ungar konur hafi sætt harðræði og illri meðferð í Byrginu. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé ekki alveg sjálfsagt að einstaklingar sem einnig voru börn meðan þær dvöldu þar séu teknar undir þessa rannsókn og þar af leiðandi að Byrgið verði rannsakað líka.
En aðallega kom ég hér upp vegna þess að í ræðu hæstv. forsætisráðherra kom hvergi fram, að því er ég heyrði og ég finn það heldur ekki í frumvarpinu, einstökum greinum þess eða greinargerð, að það eigi að kanna málefni Heyrnleysingjaskólans. Við þingmenn fengum þó á dögunum rækilega ræðu hjá einum hv. þingmanni sem greindi okkur frá því hversu skelfileg líðan barna hefði verið í Heyrnleysingjaskólanum á meðan hann var við lýði og hversu hræðilegt það var fyrir þau að upplifa bæði einelti, ofbeldi og kynferðislega misnotkun sem síðar var reyndar leidd í ljós og dæmt fyrir. Það mál hefur aldrei verið hreinsað. Það olli mikilli sorg og vanlíðan og ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Eiga málefni Heyrnleysingjaskólans ekki að falla undir þessa rannsókn? Af hverju talar hann bara um Breiðavík? Ég held að málefni Heyrnleysingjaskólans séu miklu verri.