framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Hæstv. forseti. Hvað skuldbindingar varðar þá get ég sagt hv. þingmanni að margir slíkir samningar hafa verið gerðir gegnum tíðina og hafa staðið. Ætli það hafi ekki verið Alþýðuflokkurinn sálugi, forveri Samfylkingarinnar, sem gerði fyrstur slíkan sauðfjársamning um 1991. Ég trúi því. Þessir samningar hafa staðist.
Ég vil segja við hv. þingmenn að 90% sauðfjárbænda voru að samþykkja þennan sauðfjársamning, af þeim sem greiddu atkvæði. Hér er ekkert til þess að skammast sín fyrir. Bændur vita að þeir fá tæki og öryggi og geta horft bjartsýnum augum til framtíðar. Hins vegar var það Samfylkingin sem varð sér til skammar í sumar og hefur ekki beðið þess bætur enn þá, bæði gagnvart íslenskum bændum eins og Alþýðuflokkurinn forðum og ekkert síður gagnvart fólkinu sem vinnur í afurðastöðvum og við úrvinnslu landbúnaðarafurða. Þau ætluðu með einu pennastriki að leggja til að íslenskur landbúnaður yrði lagður af. Ég minni á það hér við þessa umræðu. Það er Samfylkingin sem varð sér til skammar en ekki sá sem hér stendur.