framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Frú forseti. Ég er ekki að mæla með eða leggja hér til að það eigi að vera brýn nauðsyn og staðan eigi að vera þannig að grípa þurfi til þeirra ákvæða sem útflutningsskyldan hafði. Eins og hæstv. ráðherra nefnir sýnir útflutningsskylda upp á 40% ekkert góða stöðu greinarinnar, alls ekki.
Hins vegar gefur sú heimild sem hún ber í sér bæði atvinnugreininni og neytendum tryggingu fyrir framleiðslu og framboði vörunnar. Svo er hitt líka, ég er hérna með undirskrifað af fulltrúum bænda sem voru í samninganefndinni og ég mun gera nánar grein fyrir í ræðu minni á eftir, að bændur telja að ríkisvaldið hafi ekki staðið við þau loforð og þau fyrirheit sem voru hluti af samningnum sem þýddur var meðal bænda úti um landið. Það er mjög alvarlegt mál að standa ekki við þau fyrirheit sem eru hluti af samningnum.