framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Frú forseti. Grundvallarágreiningur minn og hv. þingmanns í þessum efnum er sá að ég tel að lögmál markaðarins eigi að fá að gilda eins og hægt er á þessum markaði eins og öðrum. Ég skil hv. þingmann þannig að hann óttist að ef kæmi sveifla niður í verði til framleiðenda mundi það leiða til þess að þeir drægju úr framleiðslunni sem aftur mundi leiða til skorts lengra inn í framtíðina.
Ég er að hugsa um hagsmuni neytenda og mér finnast þeir, eins og hv. þingmanni, fyrir borð bornir í þessum samningi. Það er að vísu rétt að eitt markmiða samningsins er að tryggja hágæðavöru og það sem hv. þingmaður kallar matvælaöryggi og ekki skal ég draga úr því. Menn eiga fyrst og fremst að hafa val. Við neytendur eigum að hafa val um það að geta keypt hágæðavöru af þessum toga.
Mér virðist sú útflutningsskylda sem við höfum í dag vera til þess fallin að draga úr því að aukið framboð leiði til lækkunar á verði vörunnar til okkar neytenda. Þess vegna finnst mér þetta gagnrýnisvert og þurfi að skoða mjög vel hvort eigi að viðhalda þessu eins og mér sýnist hv. þingmaður vilja. Hins vegar vek ég athygli hans á þessu orði og hvað í því felst, útflutningsskylda. Það felur í sér kvöð til allra um að flytja út tiltekið hlutfall af framleiðslu sinni.
Margir bændur eru hundfúlir yfir þessu vegna þess að þeir telja að þeir geti selt framleiðslu sína innan lands en jafnvel þó að svo væri verða þeir eigi að síður að undirgangast þessa skyldu. Ég er mjög efins um það, vek hins vegar eftirtekt hv. þingmanns á því að jafnvel þótt skyldan verði afnumin hafa þeir áfram frelsi til þess að selja til útlanda. Það er enginn sem bannar þeim það. Samningurinn gerir það ekki eins og ég (Forseti hringir.) skil hann.