framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Herra forseti. Nú er aldeilis að verða fjör í kolli hæstv. ráðherra. Nú gefur hæstv. ráðherra það í skyn að hann skilji ræður mínar betur en ég sjálfur. Það er auðvitað merkur áfangi hjá hæstv. ráðherra og verð ég þá væntanlega að taka til baka það sem ég sagði áðan um drykkinn fyrir norðan vegna þess að greinilegt er að hæstv. ráðherra hefur þá fengið sér miklu meira af þeim drykk en ég hélt. (Landbrh.: Hvaða drykkur var þetta?) Þetta var merkur drykkur, hæstv. ráðherra sem ég skal rifja upp fyrir þér á eftir. (Landbrh.: Var það ekki berjasaft?) Það var berjasafi, já, sem þú varst að smakka og taldir hann hafa mikil og góð áhrif á heilabúið. Þetta hefur væntanlega verið þannig en ég verð að segja það við hæstv. ráðherra að ég treysti mér til að skilja ræður mínar a.m.k. ekki síður en hæstv. ráðherra.
Það var þó allt annað að heyra í hæstv. ráðherra nú en í fyrra andsvarinu. Nú var þetta skýrt þannig að hæstv. ráðherra hefði lært það, væntanlega í einhverjum stjórnmálaskóla í sínum flokki, að það væri áróðurstækni af hálfu Samfylkingarinnar að tala um að lækka þurfi matarverð og menn tali bara um það þegar verið er að tala um íslenskan landbúnað. Ég get alveg glatt hæstv. ráðherra með því að við tölum miklu oftar um nauðsyn þess að lækka matarverð þó að við tölum ekki um landbúnaðinn um leið. Við reynum yfirleitt að koma þessu að þegar einhver möguleiki er á vegna þess að við teljum þetta afar brýnt. Ég sagði líka áðan að það ætti eftir að koma í ljós hversu mikið allir þeir milljarðar sem hæstv. ráðherra talaði um að hefðu verið notaðir til að lækka matarverðið, lækka það. Það er hins vegar ekki komið í ljós og ýmsir óttast reyndar að það lækki ekki nægjanlega mikið. Við skulum auðvitað vona að það skili sér.
Það verður einnig að segja hæstv. ráðherra það en hann hefur ekki tekið mikið undir það að það er eðlilegt að vekja athygli á því að skattahækkanir af ýmsum gerðum og tegundum hafa, þrátt fyrir að hæstv. ráðherra haldi að hann hafi eingöngu verið að lækka skatta, að hluta til skilað sér þannig (Forseti hringir.) að það er til fjármagn til þess að gera tilraun til að lækka matarverðið.