133. löggjafarþing — 84. fundur,  8. mars 2007.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

669. mál
[17:10]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu er mjög margt gott að gerast í sveitunum (Gripið fram í.) en burt séð frá framgöngu einstakra — að sjálfsögðu hefur margt gott gerst. Það stendur samt eftir sem áður að enn eru sauðfjárbændur sem slíkir einhver tekjulægsta stéttin í landinu. Það stendur eftir og hæstv. ráðherra getur ekki talað sig frá því með því að benda í aðrar áttir, en gott og vel.

Hæstv. ráðherra kvað hér upp nokkur tíðindi. Fyrir ári sagði hann að vel kæmi til greina að setja einhvers konar reglur eða skorður við uppkaupum eða raðkaupum á bújörðum. Fjöldamörg dæmi eru um mjög harðar reglur, eins og ábúðarskyldur og fleira, ef við förum til nágrannalandanna, sem ég held reyndar að engin ástæða sé til að taka upp hér. Líka liggur það fyrir, og það segja ungir menn sem vilja kaupa sig inn í búrekstur og hafa ekki að neinum jörðum að ganga, að hið háa jarðarverð kemur í veg fyrir nýliðun í greininni og þvælist fyrir þeim sem vilja hefja hinar hefðbundnu greinar.

Gott og vel, það er ekkert einboðið að grípa eigi inn í en það þarf að ræða það. Hæstv. landbúnaðarráðherra virðist kominn að þeirri niðurstöðu að nú komi alls ekki til greina að setja, eins og hann orðaði það, lög sem lækka jarðarverð. Það eru þá tíðindi í sjálfu sér. Fyrir ári sagði hann að vel kæmi til greina að setja einhvers konar skorður við uppkaupum á jörðum eða raðkaupum á jörðum sem leiddu til þess að fáir eignuðust margar jarðir og verðið færi upp úr öllu valdi. Það er hins vegar mikið umhugsunarefni hvort ganga eigi þannig fram og ekkert sjálfsagt að svo verði gert en mestu skiptir að fylgjast með þróuninni. Hún er um margt mjög jákvæð. Það þarf hins vegar að gæta vel að þessum málum. En það eru tíðindi að hæstv. ráðherra hefur þó komist að þeirri niðurstöðu að ekki eigi að grípa til neinna aðgerða.