133. löggjafarþing — 86. fundur,  12. mars 2007.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá 1. þm. Norðvest., Sturlu Böðvarssyni, dagsett þann 9. mars sl.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindagerðum og get ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Guðjón Guðmundsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.