133. löggjafarþing — 86. fundur,  12. mars 2007.

stjórnarskipunarlög.

683. mál
[17:40]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þarf ekki að hafa langt svar við þessari ræðu hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar. Ég er sammála honum um það að við eigum að stefna til þess að tryggja sameignarákvæðið en alls ekki að veikja það og öll för í þá veru er af hinu verra.