afstaða VG til virkjunar í neðri hluta Þjórsár -- stækkun álversins í Straumsvík.
Hæstv. forseti. Það er hálfaumkunarvert að fylgjast með tilburðum formanns Vinstri grænna þar sem búið er að stökkva þeim manni á flótta undan fyrri ummælum sínum um virkjanir hér á landi.
Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði í fyrra að það kæmi vel til greina að virkja neðri hluta Þjórsár, nefndi þá kosti sérstaklega þegar hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra spurði hvað hv. þingmaður vildi gera í þeim efnum, hann væri á móti öllu. Þá nefndi hv. þingmaður Þjórsá. Nú er allt annað og hv. þingmaður á hröðum flótta undan þeim ummælum sínum sem hann getur ekki staðið við hér í dag.
Málið er að trúverðugleiki Vinstri grænna í umhverfismálum er enginn. Þeir stóðu að uppbyggingu gríðarlegra framkvæmda á Hellisheiði. Það er búið að leggja Hellisheiði í rúst með miklum framkvæmdum þar (Gripið fram í.) og meira að segja er það svo að á meðan á þeim framkvæmdum hefur staðið hefur hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hamast á Austfirðingum í þeirri uppbyggingu sem þar á sér stað. Nú er komið að Þingeyingum. Það má ekki gera neitt á Húsavík vegna þess að það er svo gríðarleg þensla og mikill uppgangur á því svæði. Hér er verið að tala um formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem er þingmaður m.a. fyrir Þingeyinga.
Hv. þingmaður á eftir að koma fram með trúverðuga stefnu í atvinnumálum, m.a. á norðausturhorni landsins. Búið er að hamast á Austfirðingum allt þetta kjörtímabil, allt sem miður hefur farið að mati hv. þingmanns í efnahagslífi þjóðarinnar hefur verið Austfirðingum að kenna og þeim framkvæmdum sem þar hafa átt sér stað — og sé ég að hv. þm. Þuríður Backman hlær mikið að þessu. Stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í byggðamálum á þeim svæðum er engin og gerð hefur verið aðför að þeim byggðum sem þar standa ekki svo sterkum fótum. Við stjórnarliðar viljum standa vörð um þessar byggðir en VG segir: Stopp, stopp.