133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

áform um breytt rekstrarform Iðnskólans í Reykjavík.

[13:43]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir að taka þetta mál hér upp enda hefur það ekkert verið rætt á vettvangi þingsins. Það er mikilvægt að hafa gott samráð við alla og ekki væri verra fyrir framgang málsins að gera hv. menntamálanefnd grein fyrir stöðu mála þegar þessi nefnd hefur störf þó svo að enginn efist um vald ráðherra, eins og kom fram áðan, til ákvörðunar í þessum málum.

Það deilir enginn um það að sú sameining sem lá til grundvallar Fjöltækniskólanum hefur heppnast vel og hún er án efa fyrirmynd þessarar vinnu. Þar gerði ríkið samning við Menntafélagið ehf. og getur alltaf gert breytingar á honum. Hins vegar er umhugsunarefni hvort ríkið eigi að gefa frá sér rekstur Iðnskólans. Ég veit að á bak við félagið eru áhugasamir og ábyrgir einstaklingar, fagsamtök og atvinnulífið en það væri líka möguleiki að gera tilraunaverkefni og láta þessa aðila sitja við stjórnvölinn ásamt ríkinu án þess að hreyfa við rekstrarforminu.

Það verður að liggja fyrir sjálfstæð skoðun ríkisins á því hvort fara eigi í breytingar á rekstrarformi. Ég viðurkenni hér, virðulegi forseti, að ég hef ekki myndað mér endanlega skoðun á þessu máli enda hefur ekki verið tekin afstaða til þess innan Framsóknarflokksins. Ég legg áherslu á að menn hafi að leiðarljósi eflingu þessara skóla, fjölbreyttara námsúrval og að iðn- og starfsnámi verði gert hærra undir höfði eins og svo oft er talað um. Öll breiddin verður að fá að halda sér, mikilvægt er að þrengja ekki aðgang nemenda og að sjálfsögðu að ekki standi til að auka gjaldtöku nemenda á nokkurn hátt.