133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

úrvinnslugjald.

694. mál
[14:07]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Frú forseti. Já. Ég ætla að taka undir gagnrýni á vinnubrögðin hjá hæstv. umhverfisráðherra. Sýnir bara að það hefur verið kastað til þess höndunum og hroðvirknislega staðið að verki. Því þarf að gera svona leiðréttingar eins og hér liggja fyrir.

En í ljósi þess hversu flókið og tæknilegt þetta mál er þá hefði ég nú talið að skýring hefði þurft að vera með greininni, með frumvarpinu þannig að þeir sem sjái þetta frumvarp til laga viti um hvað það fjallar annað en þær tölur sem formaður hv. umhverfisnefndar las upp og las reyndar ekki upp allar.

Í greinargerðinni segir í tveimur línum, með leyfi forseta:

„Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á viðauka XVIII við lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002. Er um lagfæringar á umbúðanúmerum og prósentutölum að ræða.“

Hvaða umbúðanúmer eru þetta? Það hefði kannski þurft að skýra það aðeins hérna út hvaða umbúðir utan um hvað þetta er o.s.frv. Því hérna er náttúrlega bara greinin og leiðréttingin. Það hefði kannski átt að skýra þetta aðeins betur sérstaklega í ljósi þess hvað þetta er tæknilegt. Það er ekki fyrir nokkurn mann sem fer í gegnum þingskjöl að skilja út á hvað þetta gengur. Þetta er bara eins og hvert annað reikningsdæmi eða reikningsþraut. Ég hefði því talið ástæðu til að skýra þetta aðeins betur fyrir þeim sem koma að málinu en þekkja ekki til þess.

Annars tel ég ekki mikla ástæðu til að ræða þetta neitt frekar en þegar hefur verið gert. En ég vil aftur gagnrýna vinnubrögðin í umhverfisráðuneytinu í vetur, hvernig málum hefur verið háttað þar, hversu seint þau hafa komið til nefndarinnar og hvernig þingmenn sem sitja í umhverfisnefnd hafa þurft að vinna þessi mál nánast á handahlaupum.

Síðast núna rétt áðan á næstsíðasta degi þingsins var að koma inn nýtt mál sem nefndarmönnum er ætlað að flytja og munu flytja. En það er alveg dæmi um vinnubrögðin hjá ríkisstjórninni í umhverfismálum í vetur.