133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

úrvinnslugjald.

694. mál
[14:14]
Hlusta

Frsm. umhvn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek fram að nú er ég að ræða þetta mál út frá minni, ég er ekki með gögnin fyrir framan mig. Nefndin hefur mjög oft á þessu kjörtímabili fengið stöðu sjóðsins hverju sinni og síðan hafa verið gerðar breytingar í kjölfarið á því.

Eins og ég segi hefur verið mjög ánægjulegt að taka þátt í að lækka þessi gjöld mjög myndarlega á ýmsum vörum. Ef þarf að lækka þau á fleiri vörum eða meira, þá væri gott að fá þær ábendingar.

Stjórn sjóðsins hefur verið, held ég, ágætlega vakandi yfir því að sjá til þess að hér myndist ekki einhverjir sjóðir, sem ekki er hugmyndin með þessu fyrirkomulagi, ef þannig má að orði komast. Ég held að það sé sjálfsagt að ef einhverjar ábendingar eru um slíkt að taka þær til greina. Þetta er að vísu, eins og ég segi, tekið fyrir í nefndinni og búið að taka fyrir í nefndinni nokkuð oft, og sem betur fer hefur það verið verkefnið fram til þessa að lækka gjöldin.

Hv. þingmaður þarf að koma kannski með aðeins nákvæmari fyrirspurn um á hvaða sviðum hægt væri að lækka gjöldin og þá væri örugglega hægt að kanna það. En ég get ekki lofað hv. þingmanni svari núna. Eins og hv. þingmaður veit er sá sem hér stendur mikill áhugamaður um lækkun skatta og gjalda þannig að ég er svo sannarlega til í að skoða það.