133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

686. mál
[14:53]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa tekið upp þráðinn og haldið áfram að vinna þá vinnu sem hafin var innan Orkuveitunnar og hófst í raun og veru með vottun fyrirtækisins og undirgöngu undir ISO-staðalinn. Það starf er til fyrirmyndar sem þar hefur verið unnið, virkilega til fyrirmyndar. Hæstv. ráðherra má alveg viðurkenna að það voru stjórnvöld í Reykjavíkurborg sem gengu á undan með góðu fordæmi, ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn, vegna þess að það starf var byrjað áður en Reykjavíkurlistinn lét af störfum í borginni.

Þar var t.d. búið að ákveða, vegna þess líka að ISO-vottunin gerir það að verkum að Orkuveitan var í tíð Reykjavíkurlistans farin að versla við Hópbifreiðir sem er umhverfisvottað fyrirtæki. (GÞÞ: Þetta tengist ekki neitt. Þú ert að rugla saman.) Ég er ekki að rugla saman, ég veit allt um þetta vegna þess að ég þekki vel til þessa máls. Áður en Sjálfstæðisflokkurinn kom til starfa í Orkuveitunni sem leiðandi afl var búið að stíga metnaðarfullt skref í þessum efnum.

Hæstv. ráðherra vill drepa því máli á dreif sem ég hóf umræðu um, ég er að reyna að beina kastljósinu að ríkisstjórninni og Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn og ég spyr: Hvers vegna getur ekki hæstv. ráðherra lagt til að gengið sé lengra í þeim efnum sem hér er verið að fjalla um og að tekin séu róttækari skref?