133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

breyting á XXII. viðauka við EES-samninginn.

571. mál
[16:44]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2006, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Jón Ögmund Þormóðsson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.

Markmið tilskipunarinnar er að auðvelda hlutafélögum samruna milli landa en lagalegir og stjórnsýslulegir erfiðleikar hafa hamlað á þessu sviði þrátt fyrir það lagaumhverfi sem áður hefur verið komið á með EES-gerðum á sviðinu. Til þess að reglur tilskipunarinnar eigi við um samruna þarf að vera um samruna hlutafélaga frá minnst tveimur EES-ríkjum að ræða.

Lagafrumvarp sem ætlað er að innleiða efni tilskipunarinnar í íslenskan rétt hefur verið til meðferðar á Alþingi og mælti efnahags- og viðskiptanefnd með samþykkt þess á fundi 8. mars síðastliðinn. Nefndin vekur athygli á að verði það mál að lögum er enn eftir að innleiða ákvæði 16. gr. tilskipunarinnar sem er á málefnasviði félagsmálaráðuneytis en lagafrumvarp verður ekki lagt fram fyrr en á haustþingi. Frestur til að innleiða tilskipunina í íslenskan rétt er til 15. desember 2007, sbr. 19. gr. hennar. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Undir hana rita auk mín hv. þm. Össur Skarphéðinsson, Drífa Hjartardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sæunn Stefánsdóttir og Guðjón A. Kristjánsson.