vísitala neysluverðs.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allsherjarnefnd um frumvarp til laga um breyting á vísitölu neysluverðs. Nefndin hefur með hefðbundnum hætti fjallað um þetta mál og fengið á sinn fund gesti.
Í frumvarpinu er lagt til að vísitala neysluverðs verði reiknuð miðað við verð um miðjan mánuð en ekki verð í upphafi mánaðar eins og verið hefur. Frumvarpið er til komið vegna reglugerðar ráðs Evrópusambandsins nr. 701/2006 um að samræma tíma verðsöfnunar fyrir samræmda vísitölu neysluverðs, en hún tekur gildi 1. janúar 2008. Nefndin aflaði sér upplýsinga frá utanríkisráðuneyti um að reglugerðin hefði verið tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar í nóvember 2006 og að sex mánaða frestur til afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara væri fram í apríl. Þetta kemur ekki fram í frumvarpinu.
Nefndin vekur athygli á því að samhliða frumvarpinu er lagt fram frumvarp af hálfu viðskiptaráðherra sem breytir lögum um vexti og verðtryggingu af sömu ástæðum og raktar eru hér að framan. Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt.