133. löggjafarþing — 88. fundur,  14. mars 2007.

tilkynning.

[19:50]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég fyrir hönd Alþingis og alþingismanna senda samúðarkveðjur þeim sem eiga um sárt að binda eftir hið hörmulega sjóslys sem varð sl. nótt þar sem tveir sjómenn fórust. Enn á ný erum við minnt á hve óblíð náttúran getur verið þeim sem sækja afla á Íslandsmið.