almennar stjórnmálaumræður.
Gengið er til dagskrár og fyrir tekið eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem útvarpað verður og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex í síðustu umferð.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttur, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð Katrín Júlíusdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þriðju umferð talar Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Geir H. Haarde forsætisráðherra, í annarri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, en í þeirri þriðju Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs verða í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk tala Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra í fyrstu umferð, Sæunn Stefánsdóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri, en í þriðju umferð Birkir Jón Jónsson, 9. þm. Norðausturkjördæmis.
Fyrir Frjálslynda flokkinn talar í fyrstu umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, en Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og Valdimar L. Friðriksson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.