almennar stjórnmálaumræður.
Frú forseti. Góðir landsmenn. Það sem hefur einkennt þessa umræðu hér í kvöld er hvað stjórnarandstaðan á þingi hefur verið grútmáttlaus í umræðu um efnahagsmál, enda er það svo að núverandi ríkisstjórn hefur náð einstökum árangri á undanförnum 12 árum í efnahagsstjórninni. Hagur almennings og fyrirtækja hefur stórbatnað á umræddu tímabili, kaupmáttur íslensks almennings hefur aukist um 60% á tímabili og fyrirtækin skila methagnaði. Því er erfitt að hlusta á hv. þm. Ögmund Jónasson sem telur þetta vera varhugaverða þróun. Verðbólga fer nú minnkandi, viðskiptahallinn hefur snarminnkað og atvinnuleysið er í sögulegu lágmarki. Jafnframt þessum árangri höfum við náð því að ríkissjóður er í dag nánast skuldlaus. Til samanburðar var það þannig árið 1998 að ríkissjóður greiddi sem samsvaraði öllum framlögum til menntamála í vaxtagjöld. Hér er um gríðarlegan viðsnúning að ræða á stuttum tíma.
Á nýafstöðnu flokksþingi okkar framsóknarmanna, sem var glæsilegt, lögðum við fram áherslumál okkar. Við ályktuðum um fjöldann allan af málum og mikið í velferðarmálum. Samþykkt var á flokksþinginu að frá og með 1. janúar árið 2008 yrðu skattleysismörk hækkuð í 100 þús. kr. sem mun koma sér sérstaklega vel fyrir hina tekjulægstu í samfélaginu. Málefni aldraðra og öryrkja voru mikið til umræðu á flokksþinginu enda hefur það verið mikið í umræðunni í þjóðfélaginu að undanförnu. Nú er það svo að lífeyrisþegar eru svo sannarlega ekki einsleitur hópur, margir í þeim hópum hafa það mjög gott. Hins vegar getum við ekki litið fram hjá því að ákveðnir hópar meðal lífeyrisþega eiga mjög erfitt með að ná endum saman í dag. Ég vil að við horfum til þessara hópa, skilgreinum þá og það verði viðfangsefni okkar í framtíðinni að bæta kjör þeirra sem verst hafa það í samfélaginu. Nú er lag, ríkissjóður er skuldlaus og við getum gert svo margt, margt meira en við gátum áður fyrr. Til þess að reka öflugt velferðarkerfi þurfum við að reka öfluga atvinnustefnu, og þar er kannski sérstaklega mikill munur á okkur framsóknarmönnum og mörgum í stjórnarandstöðunni hér á þingi. Við þurfum að reka öfluga atvinnustefnu en ekki einhverja stopp/stopp-stefnu eða start/stopp-stefnu. Þar er ásteytingarsteinninn og menn telja, sumir, að eftir 12. maí, ef Vinstri grænir verða í forustu í ríkisstjórn, verði breyting á atvinnustefnunni, enda hafa fulltrúar þeirra í þessari umræðu boðað það. Það verður stopp/stopp-stefna í atvinnumálunum. Menn munu sækja sér kenningar til sósíalismans og handstýra íslensku atvinnulífi ef Vinstri grænir komast að völdum.
Fyrst og fremst á að kæla hagkerfið. Og hvað mun það þýða? Það mun þýða minni tekjur fyrir ríkissjóð, minni tekjur fyrir sveitarfélögin í landinu, leiða til þess að íslenskum ríkissjóði verður aftur steypt í botnskuldir og það mun á endanum leiða til þess að skattar munu hækka á aldraða og öryrkja og alla aðra þjóðfélagshópa. Það munu allir tapa á þessari stefnu Vinstri grænna.
Er það svo að á kjördegi sé það víst að þjóðin vilji hverfa af braut uppgangs í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar og fallast á þessa öfgastefnu sem er afturhvarf til fortíðar?
Hæstv. forseti. Það er mikill uppgangur á Austurlandi í dag. Austurland er land tækifæranna í dag og ég fullyrði, og Austfirðingar vita það, að ef núverandi stjórnarandstaða hefði verið við völd síðustu fjögur ár væri engin uppbygging á stóriðju á Austurlandi. Það er á hreinu. Um leið og ég óska Vestfirðingum alls góðs í þeirri miklu varnarbaráttu sem þeir heyja nú í byggðamálum vil ég benda á að fleiri landsvæði heyja varnarbaráttu en Vestfirðir. Norðausturhorn landsins er mjög veik byggð, fólk heyr þar líka sína varnarbaráttu. Það óskar eftir því að fá að nýta náttúruauðlindir sínar til að styrkja og efla atvinnulíf sitt. Með Vaðlaheiðargöngum og álveri á Bakka við Húsavík verður gjörbylting í atvinnumálum á Norðurlandi eystra, miklu meiri bylting en fólk grunar. Álverið verður þjónustað frá Akureyri og mörg hundruð ný störf verða til á svæðinu. Þetta kalla ég byggðastefnu, hæstv. forseti, en ekki „eitthvað annað“ eins og allir tala um.
Ég vil standa með Þingeyingum, Eyfirðingum og Akureyringum í þessari uppbyggingu en hvað segja samfylkingarmenn og Vinstri grænir hér á þingi? Það er stopp, það er stopp. Þetta eru skilaboðin til hinnar dreifðu byggða.
Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn erum skýr valkostur í litrófi stjórnmálanna. Við leggjum áherslu á öfluga atvinnustefnu sem stendur undir öflugu velferðarkerfi, besta velferðarkerfi í heimi. Íslenskri þjóð hefur aldrei vegnað eins vel, og þar hefur Framsóknarflokkurinn komið að máli. Við höfum áfram verk að vinna til að gera enn betur. Við erum reiðubúin til að halda verkinu áfram. — Góðar stundir.