Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá þingflokksformanni framsóknarmanna, Hjálmari Árnasyni, dagsett 14. mars sl.:
„Þar sem Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvesturkjördæmis, er lasinn og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Herdís Á. Sæmundardóttir framhaldsskólakennari, taki sæti hans á Alþingi á meðan.“
Herdís Á. Sæmundardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.