133. löggjafarþing — 89. fundur,  15. mars 2007.

menntunarmál blindra og sjónskertra.

[10:45]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Frú forseti. Það er auðvitað dæmigert fyrir forgangsröðun hjá núverandi ríkisstjórn að við þurfum á síðasta starfsdegi þingsins að kalla eftir sjálfsagðri þjónustu við blinda og sjónskerta og ýmsa aðra hópa sem eiga við fötlun að stríða því að velferðarþjónustan og ríkisstjórnin hefur brugðist þessu fólki.

Á dögunum var fréttaflutningur af því að gefin hefðu verið tæki til að auðvelda blindum börnum að sjá og ná einhverri færni vegna fötlunar sinnar. Þar kom fram að nú hafi þessi tæki beðið í sjö mánuði vegna þess að húsnæði vantaði og það var vísað á nefnd þriggja ráðuneyta sem ekki hefði skilað niðurstöðu sinni. Ég vil af tilefni þessarar umræðu hér spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að ráðuneyti hennar var eitt af þeim sem nefnt var í þessu sambandi: Hversu lengi eiga þessi tæki að bíða og hversu lengi eiga þessi blindu börn, sem eru u.þ.b. 30, ef fréttin var rétt, að bíða?

Ég ítreka það hér að þessi ríkisstjórn hefur tvo mánuði til aðgerða. Það er búið að tala nóg, það þýðir ekki að vísa til einhverra aðgerðahópa, ráðherra verður að grípa til aðgerða. Ég hvet hana til þess að leysa þennan vanda með tækin sem eru enn í kössunum. Það er ástæðulaust að láta þessi börn bíða og líða fyrir það.