menntunarmál blindra og sjónskertra.
Frú forseti. Það er nákvæmlega verið að gera það sem hv. þingmaður sagði áðan. Það er verið að taka af skarið. Það er alveg ljóst að það eru þarfirnar sem þurfa að ganga fyrir og kerfið verður einfaldlega að laga sig að þörfunum. Það er þess vegna sem ég skipaði framkvæmdahóp sem hefur það markmið að koma þekkingarmiðstöð á laggirnar en það er ekki menntamálaráðuneytið eitt og sér sem stendur að slíkri þekkingarmiðstöð. Þess vegna hef ég ákveðið að fara þessa leið í samráði við Blindrafélagið þar sem að koma þeir aðilar sem þurfa að koma að, sem eru sveitarfélögin, þ.e. Reykjavíkurborg.
Borgarstjóri er búinn að lýsa yfir sínum vilja, grípa þarf þann vilja. Heilbrigðisráðherra er búinn að lýsa yfir sínum vilja, grípa þarf þann vilja og nýta hann. Félagsmálaráðherra líka. Þess vegna eigum við að nýta þann vilja sem er til staðar núna og fara í þessar aðgerðir, nota þann vilja sem er til staðar að menn eru reiðubúnir, á grundvelli faglegrar skýrslu sem hefur verið unnin, m.a. af þessum erlendu sérfræðingum, til að fara í þær aðgerðir sem við þurfum á að halda til þess að öllum börnum landsins verði sinnt. Um það erum við sammála og þess vegna ætlum við að halda áfram að fara eftir þeim tilmælum sem koma m.a. fram í skýrslunni til að sinna þörfum þeirra barna sem við erum að ræða um hér í dag.