þingstörfin fram undan.
Virðulegi forseti. Í dag dugði ekkert minna en blað upp á stærðina A-3 til að koma fyrir öllum málum sem eru á dagskrá á þessum 89. fundi. 80 mál eru á þessu skjali (Gripið fram í: 20 búin.) og ég held að flestir þingmenn hljóti að vera mjög hugsi yfir því hvernig í ósköpunum við ætlum að komast í gegnum þetta og samtímis halda áætlun. Ég hygg að þjóðin spyrji sig hins sama, a.m.k. hef ég fengið fjölmörg símtöl bæði frá fjölmiðlum en líka frá almenningi þar sem spurt hefur verið hvenær þessu þingi ljúki, og líka með hvaða hætti.
Ég átti satt best að segja von á því í gær að formenn þingflokka yrðu kallaðir á fund til hæstv. forseta Alþingis til að ræða um þinglokin og fara yfir það hvernig við ætluðum að lenda þessum stóra pakka sem við höfum fyrir framan okkur. Ég sem þingflokksformaður Frjálslynda flokksins varð ekki var við að það bærist nein beiðni um það eða kall um það að þingflokksformenn ættu að koma til fundar til að ræða þetta sem er þó mjög brýnt, verð ég að segja, því að við höfum fyrir framan okkur mörg mjög stór mál. Þetta er ekki allt í sátt, það er líka ágreiningur. Það má búast við því að fjölmargir þingmenn þurfi að tjá sig bæði vel og lengi um mörg þeirra mála sem eru hér á dagskrá og eru núna fyrst að koma til 2. umr., stór og þung þingmál sem skipta að sjálfsögðu miklu máli.
Ég vildi leggja fram þá tillögu eða hugmynd að fundi yrði nú frestað og formenn þingflokka kallaðir á fund hjá forseta þar sem við settumst niður og reyndum að fara yfir það og gera upp hug okkar til þess hvaða mál við teljum að okkur sé rétt og skylt að reyna að afgreiða héðan sem fullbúin lög og þingsályktanir en vinsa hitt úr sem frekar má bíða, þau mál sem kannski eru ekki orðin nægilega þroskuð í vinnuferli okkar á Alþingi til þess að verða að lögum og geta því hæglega beðið haustsins. Ég held að það væri skynsamlegt, virðulegi forseti, að reyna að vinna þetta svona. Sú staða sem við stöndum frammi fyrir núna þar sem við höfum þennan mikla fjölda mála fyrir framan okkur, þar sem við vitum ekki hvernig við ætlum að fara að því að ljúka þessu þingi, er mjög slæm og (Forseti hringir.) ekki til mikils sóma fyrir Alþingi.