133. löggjafarþing — 89. fundur,  15. mars 2007.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

669. mál
[11:37]
Hlusta

Frsm. meiri hluta landbn. (Drífa Hjartardóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Helgi Hjörvar spyr hvort þörf sé á því að ganga frá samningi við bændur núna áður en þessu kjörtímabili lýkur. Þannig er með búskapinn að það þarf alltaf svolítinn fyrirvara á öllu. Menn geta ekki tekið mjög afdrifaríkar ákvarðanir með stuttum fyrirvara, menn verða að vita nokkuð fram í tímann hvernig samningar eru. Ég tel því að það skipti afskaplega miklu máli að gengið sé frá sauðfjársamningi núna. Í vor byrjar sauðburður og í haust þarf að ákveða ásetning og fleira þannig að menn verða að vita alltaf eitthvað fram í tímann hvernig framtíðin er og bændur leggja mikla áherslu á að þessi samningur verði samþykktur núna. Það er búið að gera þennan samning milli Bændasamtakanna og ríkisvaldsins og ég held að pólitískt séð skipti það kannski ekki öllu máli en ég held að það skipti mestu máli fyrir þessa atvinnugrein að hún hafi þann stöðugleika að hún viti hvernig framtíðin lítur út nokkur ár fram í tímann.