133. löggjafarþing — 89. fundur,  15. mars 2007.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

669. mál
[11:59]
Hlusta

Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skil ekki hvers vegna ég fæ þessa fyrirspurn, af hverju ég vilji ekki styðja búháttabreytingu hjá bændum. (Gripið fram í: Já.) Hvar hefur það komið fram að ég vilji ekki styðja hana? Ég veit engin dæmi þess að það hafi komið fram hjá mér að ég vilji ekki styðja hana. (Gripið fram í.) Ég minni þingheim á það, virðulegi forseti, að ég ásamt tveim öðrum mönnum stóð í því hér í nokkur ár að vera flutningsmaður þess að halda áfram að styðja loðdýraræktina svo að hún dæi ekki út því að hún ætti mikla möguleika á Íslandi. Það var orðið við þeim tilmælum okkar og þeim tillögum sem hafa síðan orsakað það að loðdýraræktin er núna rekin hér algjörlega styrklaus, stendur traustum fótum og styrkir byggðir landsins. Þessi fyrirspurn er fráleit og ýjar að því að ég hafi ekki hvenær sem er verið tilbúinn að styðja búháttabreytingar hjá bændum ef þess væri nokkur kostur.

Hins vegar vil ég geta þess að ég á von á því að menn biðji um þýðingar á því hvað það var sem framsögumaður minni hluta flutti hér áðan, hv. þm. Anna Kristín. Hvað í ósköpunum var þessi minni hluti að segja? Hvaða texti var það sem hún las upp og hvaða Íslendingur er það sem getur skilið hvað hún vildi sagt hafa? Það væri nær að ég spyrði hana til hvers í ósköpunum þessi ræða var haldin sem hún flutti sjálf.

(Forseti (SP): Þingmanninum ber að ávarpa hv. þingmann með fullu nafni.)