133. löggjafarþing — 89. fundur,  15. mars 2007.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

669. mál
[16:30]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst miður að hæstv. landbúnaðarráðherra telji að ég sé að fara með rangt mál og kalli það jafnvel lygi, en það sem ég er að vitna í, frú forseti, eru einfaldlega tölur frá Hagstofu Íslands. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann taki ekki mark á Hagstofu Íslands. Þetta eru tölur frá Hagstofu Íslands sem sýna fólksfækkunina sem er bein afleiðing af stefnu Framsóknarflokksins.

Af því að við erum að tala um þennan samning og afleiðingar hans fyrir byggðir landsins, þá verð ég að segja að hæstv. landbúnaðarráðherra ætti fara t.d. á Kópasker og sjá hvernig samningurinn hefur í raun þyngt og heft allar reglur fyrir sláturhúsið þar algjörlega að óþörfu. Hann hefur ekki verið góður fyrir byggðina þar og í rauninni þrengt að henni. Stefna Framsóknarflokksins hefur meira að segja meinað unglingum á Kópaskeri að leggja línu í fjöruna. Svo langt gengur þessi stefna Framsóknarflokksins. Maður er alveg gáttaður á því að hægt sé að bjóða upp á það núna árið 2007 að meina börnum að leggja línu í fjöru vegna þess að þau geti mögulega fengið fisk sem er búið að merkja kvótavinum sem styðja flokkana.

Þetta er sárt en þetta er satt. Ég vona að hæstv. landbúnaðarráðherra hafi vit á að taka orð sín aftur um það að ég hafi sagt eitthvað í ræðu minni áðan sem er ósatt. Því miður er svo ekki. Þetta er sannleikur (Landbrh.: Þú baðst afsökunar.) sem er sár fyrir framsóknarmenn. Þeir hafa einfaldlega (Forseti hringir.) leikið byggðirnar mjög grátt.