útvíkkun fríverslunarsamnings Færeyja og Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vona að hv. þingmaður gangi rólegur til hvílu í nótt en ég verð því miður að segja honum að ég hef ekki nýjar fréttir af þessu máli síðan við áttum orðastað um það síðast. Sá undirbúningur við Grænland hefur gengið hægar en við Færeyjar. Hins vegar lýsti ég því yfir og ég er enn þá þeirrar skoðunar og veit að hæstv. utanríkisráðherra er líka þeirrar skoðunar að vinna beri að því að koma upp ræðismannsskiptum við Grænland á sama hátt og við Færeyjar. Ég kann ekki að segja frá því og vil ekki fullyrða á þessari stundu hvenær það verður.