stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Það er náttúrlega í öllum atvinnugreinum þannig varðandi fjárfestingar að menn þurfa yfirleitt að hafa eigið fé líka ef þeir ætla að fjárfesta. En ég tel vera möguleika á því að aðilar sem hafa verið með lítinn kvóta fái byggðakvóta til að veiða og ef leiguverð er með þeim hætti eða það hátt að ekki er svigrúm til að fara í fjárfestingu í því og menn vilja kannski eingöngu veiða byggðakvótann þá þurfa menn að færa rök fyrir því og láta sveitarstjórn senda erindi til ráðherra. Það er það helsta sem ég sé svigrúm í.
En varðandi þessa viðleitni og að þetta sé vitlaust kerfi og annað, þá tel ég að með þeirri breytingartillögu sem við erum að gera núna séum við að setja það í lög að menn megi veiða tonn á móti tonni og við erum að styrkja landvinnsluna. Seinast var úthlutað 4.010 tonnum til byggðanna sem gerir það að verkum að við erum að setja lög um að landað verði 8.020 tonnum til byggðarlaga og þau sett í landvinnslu og unnin heima en menn þurfa að vera búnir að landa þessu áður en þeir fá úthlutað. Þetta held ég að sé mjög sterkt. En það er eins og með allar aðrar atvinnugreinar að menn eru náttúrlega að veðja á fjárfestingar og menn þurfa að eiga eigið fé. Það eru dæmi um að menn hafa verið að fjárfesta í þessu og byrjað alveg kvótalausir, t.d. í Vestmannaeyjum, og eru nú komnir með fiskvinnslu á allan pakkann. En það þarf svolítinn kjark að fara í svona fjárfestingar.