133. löggjafarþing — 90. fundur,  15. mars 2007.

stjórn fiskveiða.

459. mál
[23:52]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl):

Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að fram fari nokkur umræða um þetta mál sem hér er til umræðu sérstaklega í ljósi þess að um er að ræða viðurlagaákvæði, viðbrögð til að reyna að bæta úr alvarlegum ágöllum þess kerfis sem við styðjumst við varðandi stjórn fiskveiða, a.m.k. að nafninu til en er svo í reynd orðið allt annað. Fiskveiðum er ekki stjórnað eftir þessu kerfi fyrst og fremst til að byggja upp fiskstofnana eins og var yfirlýst markmið laganna í upphafi heldur af fjárhagslegum ástæðum.

Eins og kunnugt er þekkjum við það að í lögunum um stjórn fiskveiða er meginreglan sú að veiðar eru frjálsar. Íslendingar eru frjálsir menn í sínu landi eins og þeir hafa verið öldum saman en ráðherra er veitt heimild til að takmarka veiðar í einstaka fiskstofnum ef ástæða er talin til að gera slíkt vegna þess að stofnarnir beri ekki þá veiði sem ætla má að verði að öðrum kosti. Í raun og veru er meginreglan sú að veiðar eru frjálsar en með þeirri undantekningu að heimilt er að takmarka þær við þessar aðstæður.

Það hafa komið upp aðstæður þar sem ekki hefur verið þörf á því að halda áfram takmörkuðum veiðum og þá hefur ekki verið gripið til þess að afnema skömmtunarkerfið sem auðvitað undirstrikar það að í reynd er sjávarútvegsráðherra farinn að stjórna þessu með fjárhagslega hagsmuni í huga en ekki fiskverndunarhagsmuni. Gleggsta dæmið um það eru veiðar á úthafsrækju þar sem sókn hefur verið á löngum stundum lítil sem engin og eftir sem áður hefur verið úthlutað kvótum og þeim sem ekki hafa aflamark undir höndum þannig meinað að sækja í stofninn þó að engin sókn sé og engin veiði.

Kerfið er ákaflega óvinsælt, hefur löngum mælst hjá þjóðinni þannig að tveir af hverjum þremur eru óánægðir með það og jafnvel andvígir því og nýjasta könnun sem var birt fyrir nokkrum dögum dregur þar svipaða andstöðu fram og reyndar ívið meiri, um 70% landsmanna eru andsnúin kvótakerfinu. Það hlýtur auðvitað að segja sína sögu að þrátt fyrir 20 ára sögu kerfisins slær ekkert á óánægjuna með það og jafnvel þótt þeir sem helst tala fyrir kerfinu séu áhrifamiklir í þjóðfélaginu og haldi uppi miklum áróðri fyrir land og þjóð og ekki kannski bara innan lands heldur líka erlendis fyrir því hversu frábært þetta kerfi er, þá minnkar andstaðan ekki heldur kannski frekar að hún vaxi. Óánægjan er auðvitað sprottin af þeim rótum að þeir sem taka verðmætin fyrir nýtingu á veiðiheimildum eru ekki eigendurnir, eru ekki þjóðin, heldur einstaklingar sem eru í raun og veru búnir að fá í sínar hendur heimild til að afla sér tekna á annarra kostnað fyrir að gera ekki neitt. Það er auðvitað alveg frábært kerfi fyrir þá sem vilja hafa miklar tekjur fyrir litla vinnu, að geta fengið framselt til sín einhvers konar skattlagningarvald ríkisins og verið svona innheimtumenn fyrir hönd almannavaldsins án þess að þurfa að skila því sem þeir innheimta.

Hin ástæðan sem veldur viðvarandi óánægju eru afleiðingarnar af framsalinu sem bitna á fólki sem engan þátt á í ákvörðuninni en verður fyrir skaða, fyrst og fremst fjárhagslegum skaða, bæði vegna atvinnu sinnar og eigna. Það hefur ekki enn þá reynst vera vilji til að taka á þessum vanda. Það hefur verið gert til að reyna að lina þjáningar þeirra sem verða fyrir barðinu á kerfinu að koma upp svokölluðum byggðakvóta sem ég batt lengi vel vonir við að yrði hægt að efla með árunum til að bæta meira fyrir þann skaða sem af framsalinu verður en þær vonir hafa ekki ræst heldur hefur þetta orðið nokkurs konar friðþægingarkerfi með allt of litlu magni til að bæta mönnum upp, eða byggðarlögum sem verða fyrir tjóni. Því miður er þetta að festast í sessi sem einhvers konar friðþæging til þess að geta verið afsökun fyrir meginreglum kerfisins sem er orsökin fyrir óánægjunni. Þá verður byggðakvóti farinn að vinna gegn sínum upphaflega tilgangi þegar hann er kannski farinn að verða skálkaskjól fyrir þá sem ekki vilja breyta kerfinu.

Vandinn er auðvitað sá að menn hafa ekki tekið á rótum vandans. Fyrr eða síðar þarf að ráðast til þess verkefnis að skera upp þetta kerfi og finna sanngjarnari leikreglur ætli menn að skapa einhvern frið um þetta kerfi. Því miður eru ekki neinar vísbendingar uppi um það af hálfu núverandi ríkisstjórnar að nokkur vilji sé til þess að sækja fram til betra kerfis, heldur er slegin skjaldborg utan um sérhagsmuni stórútgerðarmanna og staðinn dyggur vörður um möguleika þeirra til þess að skattleggja aðra landsmenn, þá sem hugsa sér að hafa atvinnu af sjávarútvegi og hafa af því stórfelldar tekjur. Ég held að þeim sem fylgjast með ástandinu, t.d. vestur á fjörðum, blandist ekki hugur um að það þýðir ekkert lengur að bjóða mönnum einhverjar skóbætur á stagbætta flík. Það eina sem getur orðið mönnum til bjargar er að hverfa frá atvinnuhöftunum, hverfa frá kerfi þar sem menn eru fjötraðir í bönn og leyfi yfir í kerfi þar sem menn eru frjálsir. Það verður að innleiða markaðslögmál og atvinnufrelsi í þessari atvinnugrein eins og aðrar atvinnugreinar.

Það er með ólíkindum að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkur skuli standa vörð um þetta kerfi. Ég held að mörgum mundi þykja það skrýtið ef menn innleiddu þetta kerfi í aðrar atvinnugreinar, sem væri alveg hægt. Það er hægt að gera þetta í öllum öðrum atvinnugreinum ef mönnum sýnist svo, úthluta leyfum og hafa þau framseljanleg, afhenda einstaklingum leyfi á grundvelli atvinnustarfsemi á tilteknu árabili og banna síðan öllum öðrum að stunda viðkomandi starfsleyfi nema þeir hafi keypt leyfi af þeim sem fékk úthlutað í upphafi. Þetta er hagfræðilega hægt. Hagfræðilegu rökin fyrir því að taka þetta upp í öðrum atvinnugreinum eru augljós. Ef kerfið er svona gott í sjávarútvegi, þá ættu menn að halda áfram í öðrum atvinnugreinum.

Ég bíð bara eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn taki upp á að innleiða þetta kerfi í iðngreinum, t.d. fyrir málara eða múrara, ákveði að hafa 300 múraraleyfi á Íslandi og banni öllum öðrum að stunda þá starfsemi jafnvel þótt þeir hafi til þess menntun. Menn yrðu að kaupa sig inn í greinina með því að kaupa einhvern múrarann út. Að öðrum kosti fengju þeir ekki að starfa í greininni.

Þannig er kvótakerfið í hnotskurn. Í þessum fjötrum er sjávarútvegurinn. Þess vegna er staðan í sjávarútveginum eins og hún er. Greinin er að sökkva í skuldir. Það má segja að skuldirnar nái nánast upp í mastur á íslenskum sjávarútvegi og sjávarbyggðir landsins eru að veslast upp ein af annarri. Meira að segja þær byggðir sem menn héldu löngum að væru varðar fyrir áhrifum kvótakerfisins vegna þess hversu fjölmennar þær væru, eins og Akureyri eða Akranes, mega búa við þær aðstæður sem önnur minni sjávarbyggðarlög hafa mátt þola, að kvótinn streymir frá þeim. Atvinnan minnkar, tekjur lækka og fólki fækkar. Þrátt fyrir það er enginn bilbugur á ríkisstjórninni að standa vörð um hagsmuni þeirra sem hafa undir höndum veiðiheimildir og meðan svo er verður auðvitað engin breyting.

Ég held að það sé ástæðulaust að hafa mörg orð um fyrirkomulag byggðakvótans í þessum lögum vegna þess hversu lítilfjörlegt það er. Það beinir athyglinni frá aðalatriðum málsins. Menn þurfa að ráðast á kerfið sjálft og brjóta hagsmunina á bak aftur. Það er fullreynt að stjórnarflokkarnir ráða ekki við útvegsmannahagsmunina á Íslandi. Sá fámenni hópur útvegsmanna á Íslandi sem fylkir sér undir gunnfána LÍÚ er það öflugur innan beggja stjórnarflokkanna að forustumenn flokkanna ráða ekki við að halda sérhagsmununum niðri og almannahagsmunir verða að víkja fyrir sérhagsmunum.

Eiginlega eru einu frambærilegu rökin sem ég hef heyrt borin fram fyrir því að Íslendingar ættu að ganga í Evrópusambandið þau að Ísland sé svo fámennt land og að vegna fámennisins geti fámennir hagsmunahópar náð sterkum tökum á stjórnmálaflokkum landsins. Það endurspeglast gleggra í sjávarútveginum en í nokkrum öðrum atvinnugreinum. Rökin sem ég hef heyrt borin fram fyrir því að ganga í Evrópusambandið eru af þessum toga. Þá mundi meginlöggjöfin um fiskveiðarnar vera mótuð af aðilum innan Evrópusambandsins sem íslensku hagsmunirnir réðu ekki við. Þannig væru meiri líkur til þess að löggjöfin um þessa atvinnustarfsemi mótaðist af almennum leikreglum og almennum hagsmunum en sérhagsmunum.

Ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, eftir að hafa verið í nokkru návígi við þessa sérhagsmuni hér á landi í nokkur ár finnast mér þessi rök hljóma skynsamlega að mörgu leyti, eftir að hafa séð hversu sterk tök þessa hagsmunahóps eru á stjórnarflokkunum. Það felur auðvitað feigðina í sér þegar sérhagsmunir ráða yfir almannahagsmunum. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra og leiðir til ófarnaðar eins og dæmin sanna, eins og við sjáum í sjávarbyggðum landsins einni af annarri.

Þessar tillögur um byggðakvóta eru í sjálfu sér, þ.e. breytingarnar sem gerðar eru á frumvarpinu, að mínu viti í rétta átt. Þar er vikið til þess að hafa sambærilegar reglur um land allt í stað þess að fela hverri einstakri sveitarstjórn möguleika á að útfæra úthlutunina og skilyrðin með breytilegum hætti. Ég tel það til bóta að hafa sem mest samræmda framkvæmd á þeim hlutum og geri ekki athugasemdir við þessar breytingar. Fulltrúi okkar Frjálslyndra í sjávarútvegsnefnd hefur skrifað undir breytingartillögurnar með fyrirvara. En hann á þess ekki kost í dag að vera við umræðuna. Hann getur ekki gert grein fyrir afstöðu sinni í kvöld en væntanlega gerir hann það á morgun.

Ég vek hins vegar athygli á því hversu flókið kerfi þetta er orðið. Í breytingartillögunum er tekið fram hvernig á að standa að þessu. Þar segir í tillögunum að ráðherra eigi að setja reglugerð, almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda. Síðan eru tíunduð þau skilyrði sem m.a. á að setja ráðherra. Það eru sjö atriði sem ráðherra þarf að huga að. Hann þarf að huga að skilyrðum varðandi skráningarstað, skráningartíma, eignarhaldi, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverði fyrir fiskinn, tryggingum fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar. Það er ekkert smávegis sem þarf að ákveða í reglugerð til þess að þessir hlutir geti gengið fyrir sig. Áður þarf ráðherrann að hafa ákveðið í annarri reglugerð skilgreiningar á því hvað sé byggðarlag og gert skilgreiningar á viðmiðunar- og útreikningsreglum og aðrar reglur um útflutning. Þetta er alveg óskaplega flókið kerfi og satt að segja ekki mönnum til mikils sóma á þeim tímum að menn sigla undir flaggi einfaldara Íslands að búa til svona reglugerðarsúpu.

Það er til marks um hvað kerfið er slæmt þegar menn þurfa svo flókin skilyrði fyrir úthlutun. Það er til marks um að menn séu á villigötum og kerfið sjálft sé vandinn og skapi þessar flóknu aðstæður. Ég held að menn muni fyrr eða síðar gefast upp á þessu byggðakvótafyrirkomulagi og að þar komi til hin augljósa staðreynd að í því er verðmætum útdeilt. Í raun er verið að útdeila peningum. Eins og við þekkjum, m.a. úr sögunni, og Egill Skallagrímsson forðum gerði sér grein fyrir því, er vísasta leiðin til að koma öllu í bál og brand að dreifa silfrinu. Hann hafði hugsað sér eins og menn þekkja að dreifa silfri sínu yfir Alþingi en skynsamir menn komu í veg fyrir það svo þingið leystist nú ekki upp í deilur um hvernig menn kæmust yfir silfrið sem hann hugðist sáldra yfir þingheim. En auðvitað verða áhrifin af þessu svipuð og Egill Skallagrímsson hugðist ná fram á Alþingi forðum.

12.000 þorskígildi eru miklir peningar. Þetta eru um 2 milljarðar kr. í aflaverðmætum miðað við meðalverð á þorski, óslægðum fiski upp á um 166 kr. á kíló, sem er það meðalverð sem ég finn frá Fiskistofu fyrir desember síðastliðinn og meðalverð af sölu, bæði beinni sölu og á mörkuðum. Ef við horfum á réttindin sjálf, en ekki fiskinn sem menn veiða, þá er miðað við 150 kr. leiguverð. Þá eru réttindin nær 1.800 millj. kr. á ári. Það eru verðmæti þessara réttinda. Auðvitað er vandasamt að deila út svona verðmætum sem eru í raun ekki annað en peningur. Ég held að þess vegna verði þetta svona flókið. Menn þurfa að setja svo margar reglur til að finna leiðir til að deila út slíkum verðmætum án þess að allt fari í bál og brand.

En það mun aldrei verða friður um svona fyrirkomulag af þeirri einföldu ástæðu að þeir sem þurfa að kaupa veiðiheimildirnar, sem er hin meginreglan í kerfinu í dag, að menn þurfi að afla sér veiðiheimilda með kaupum eða leigu, sætta sig ekki við að í kerfinu sé hluti veiðiheimildanna á floti sem eru afhentar mönnum án endurgjalds, sem jafnvel eru að gera út á sömu stöðum, á sama tíma, á sams konar bátum, með sömu veiðarfæri og veiða sams konar fisk og fá sama verð fyrir hann. Þeir eru þó misjafnlega staddir af því annar þarf að kaupa veiðiheimildina og útgerðarkostnaðurinn er þá meiri sem því nemur en hjá hinum sem fær veiðiheimildina afhenta án endurgjalds. Það fyrirkomulag að afhenda veiðiheimildir án endurgjalds inni í þessu kerfi eins og það er orðið verður aldrei til friðs.

Ég er eiginlega kominn á sömu skoðun og bæjarstjórn Vesturbyggðar komst á fyrir nokkrum árum þegar hún stóð frammi fyrir því að þurfa að útdeila kvóta, að eina leiðin sem mundi ekki skapa illindi og deilur í sveitarfélaginu væri einfaldlega að leigja veiðiheimildirnar á markaði og nota peningana í atvinnuuppbyggingu. Þá voru þeir útgerðarmenn sem tóku veiðiheimildirnar á leigu jafnsettir hinum sem voru að vinna í kerfinu. Ég held því miður að þetta verði niðurstaðan ef menn ætla að halda sig við byggðakvóta til einhvers lengri tíma, að menn endi þannig. Það verður mestur friður um það og sveitarfélag sem á að njóta byggðakvótans í dag fengi peninga í staðinn fyrir veiðiheimildir. Væntanlega yrðu sett lög eða reglur um það hvernig eigi að nota þá peninga. Væntanlega verður skilyrðið að það fari til atvinnumála, jafnvel í sjávarútveg eða eitthvað slíkt. Almennt held ég að þessi leið hafi slíka annmarka í för með sér að hún standist ekki til lengri tíma, þessi fríkvótaúthlutunarleið.

Í öðru lagi vil ég nefna bætur til þeirra sem hafa réttindi til sérveiða sem þeir geta ekki nýtt sér af líffræðilegum ástæðum um lengri tíma. Þar á ég t.d. við hörpudisksrétthafa og innfjarðarrækjumenn. Þeir hafa fengið bætur til að vega upp á móti tekjutapi sem leiðir af því að geta ekki nýtt þessi réttindi sín. En þær bætur hafa verði skertar eða fyrndar á nokkrum árum. Það er svolítið merkilegt að ríkisstjórnin er hrifin af fyrningarleiðinni þegar kemur að þessum hópi manna. Þá er hægt að fyrna mjög hratt, 10% á ári, virðulegi forseti. Það stendur ekkert í fjárhagsáætlunum að fyrna aflaheimildir um 10% eða jafnvel meira þegar um er að ræða þessar sérveiðiheimildir. Það sannar að fyrningarleiðin er fær og ekki í andstöðu við stjórnarskrána eða ákvæði fiskveiðistjórnarlaganna, sé hún þegar framkvæmd í lögunum á grundvelli lagaheimilda í dag.

Ég held að fyrningin á bótum fyrir sérveiðiréttindin sé ósanngjörn vegna þess að hún leiðir til þess að þeir sem hafa réttindi en geta ekki nýtt sér muni að nokkrum árum liðnum standa uppi með þau réttindi óbreytt. Það er ekki hægt að nýta þau og fyrir það komi engar bætur. Mér finnst að huga þurfi að því að þeir njóti bótanna, fyrst á annað borð er talið sanngjarnt að þeir fái bætur, og þær eigi að vera föst tala þar til menn sjá fyrir endann á að hægt verði að stunda veiðarnar aftur eða að ríkið einfaldlega kaupi af þeim réttindin, sem út af fyrir sig væri leið sem menn ættu að íhuga í langvarandi ástandi líkt og með hörpudiskinn. Hið opinbera ákveður að banna veiðar á tegundum eða nýtingu réttinda um langan tíma og þá finnst mér koma til greina að ríkið kaupi réttindin inn af mönnunum og þeir geti snúið sér að því að koma sér fyrir í kerfinu í öðrum tegundum, afla sér annarra réttinda.

En ég benti a.m.k. á þennan ágalla sem ég hygg að sé enn á málinu þrátt fyrir breytingartillögurnar sem eru almennt til bóta, virðulegi forseti. Sérveiðimennirnir standa það höllum fæti vegna fyrningarinnar að ég tel það ósanngjarnt. Ég tel að þeir eigi sér málsbætur í sínum umkvörtunum sem rétt væri að Alþingi og ráðherra tækju til frekari athugunar.

Ég vek að lokum, virðulegi forseti, athygli á að skilyrðin sem sett eru fyrir nýtingu fríkvótans eða byggðakvótans, eru að mörgu leyti til að mæta þeirri gagnrýni sem almenna kvótakerfið sætir vegna framsalsins. Settar eru kvaðir á þá sem fá kvótann, um að þeir þurfi að veiða frá tiltekinni höfn, jafnvel landa í höfninni og fiskurinn sé unninn í viðkomandi byggðarlagi. Þessar reglur endurspegla að mínu viti gagnrýnina. Þær eru settar fram til að mæta henni. Þeir sem leggja þetta til telja þetta sanngjarnar kvaðir á hendur þeim sem hafa heimildirnar undir höndum.

Ég get tekið undir það. Ég held að þetta séu sanngjarnar kvaðir. Ég held að menn eigi að skoða þetta í stærra samhengi, þ.e. kerfið sjálft. Þessar kvaðir eru ekki bara sanngjarnar varðandi þau 3% veiðiheimildanna sem eru á byggðakvóta heldur fyrir allar hinar veiðiheimildirnar líka. Alþingi á ekki að setja þessar sanngjörnu reglur um 3% heimilda heldur á 100%. Þá þurfum við ekki 3%. Ef við hefðum þessar reglur um framsal eða takmarkanir á framsali í almenna kerfinu, sem mundu þýða að hluti aflaheimilda yrði festur við útgerðarstaði, ekki bara veiðarnar heldur jafnvel líka við vinnsluþátturinn, þá væri ekki sú staða í kerfinu sem við höfum horft upp á a.m.k. síðan 1991 eða 1990. Þá væri heldur ekki sú gagnrýni á kerfið sem verið hefur síðan sem er ein af meginástæðunum fyrir feiknalegri óánægju með kerfið.

Ég dreg þetta fram til að undirstrika að það þarf ekki að finna skynsamlegar reglur fyrir byggðakvótann heldur yfirfæra þær reglur á almennu leikreglurnar í kerfinu og hætta þeirri vitleysu, vil ég segja, virðulegi forseti, að úthluta mönnum réttindi á grundvelli þess að þeir hafi veitt, sem er sjónarmið sem ég get alveg tekið undir. En eigi að takmarka veiðar væri betra að réttindin féllu til þeirra sem hafa stundað veiðar. Síðan gera menn breytingu, gera mönnum kleift að framselja réttindin. Menn geta haft þau undir höndum um ótiltekinn tíma án þess að nýta þau. Án þess að gera það sem var forsenda þess að þeir fengu réttindin í sínar hendur, þ.e. að veiða. Heldur leigja þeir kvótann þannig að þriðji aðili raunverulega nýtir réttindin, nær í fiskinn en þarf að borga handhafanum fyrir það. Handhafinn gerir ekki það sem hann á að gera. Hann á að nýta þessar heimildir og hefur þær undir höndum til þess. Hann ber engin útgjöld og gerir ekki það sem er forsenda réttindanna en tekur við tekjunum. Hann er í þeirri stöðu að hafa undir höndunum heimildir sem hann getur breytt í peninga. Hann er orðinn hálfgerður skattheimtumaður. Það er eins og hann sé orðinn umboðsmaður almannavaldsins eða ríkisvaldsins, svona nokkurs konar fógeti í Nottingham sem getur ráðið sér menn til að vinna verkin og borga sér fyrir það stórfé.

Þetta fyrirkomulag getur ekki gengið, virðulegi forseti. Það sem ég hygg að geti gengið er að þeir sem hafi réttindin til að veiða noti þau til að veiða en ekkert umfram það. Noti þeir ekki réttindin sjálfir þá er það bara ríkið sem sér um að ráðstafa þeim. Þetta eru í hnotskurn vandamálin í kerfinu eins og ég sé það fyrir mér. Þegar menn hafa greint vandann er auðvitað tiltölulega einfalt að finna lausnina, a.m.k. þegar menn eru sammála um hver vandinn er.

Ég er ekki í neinum vafa um það fyrir mitt leyti hver vandinn er. Þess vegna er ég tiltölulega sannfærður um hvað gera ber til að skapa sæmilegan og góðan frið um aðstæður til að tryggja atvinnufrelsi í greininni þannig að greinin búi við sambærilegar aðstæður í markaðshagkerfi og aðrar atvinnugreinar þar sem frelsi ríkir og menn geta keppt hver við annan á grundvelli almennra reglna en ekki á grundvelli þess að hluti þeirra sem starfa í greininni geti sett hinum stólinn fyrir dyrnar.