133. löggjafarþing — 90. fundur,  16. mars 2007.

stjórn fiskveiða.

459. mál
[00:25]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil fagna því að hæstv. ráðherra hefur gripið til þess ráðs að stöðva fyrninguna á þeim bótum. Ég held að erfitt sé að réttlæta hana. Þó er að vísu sá annmarki á, eins og hann gat um, að opnað var fyrir það að hægt væri að framselja veiðiheimildirnar til aðila utan byggðarlagsins, til aðila sem ekki hafa ástundað veiðar í þessum fjörðum. Þá eru komnar upp svolítið sérstakar aðstæður, að aðili annars staðar að af landinu hefur keypt réttindin, er ekkert á staðnum, er ekki að hugsa um að skapa atvinnu eða nýta réttindin með einum eða öðrum hætti á staðnum en fær bætur og notar þær til atvinnusköpunar annars staðar. Það er í andstöðu við tilgang bótanna. Það er erfitt að finna réttu leiðina út úr þessu vegna þess að kerfið er allt í sjálfu sér með svo miklum innri mótsetningum. Ég hef skilning á því að hæstv. ráðherra eigi í vanda með að finna einstigi í gegnum þetta. Ég held að hæstv. ráðherra ætti fyrst og fremst að horfa á atvinnuhagsmuni á viðkomandi landsvæði eða í byggðarlagi þar sem sérveiðiréttindin hafa verið nýtt.