133. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2007.

staða fjármálastofnana.

[11:05]
Hlusta

Guðjón Ólafur Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Það er athyglisvert að fylgjast með hvernig spunameistarar og leikstjórar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa reynt að breyta ásýnd þingmanna flokksins á þinginu í síðustu viku. Formaður flokksins, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon skríður hér skælandi í ræðustól og kjökrar undan málflutningi okkar framsóknarmanna milli þess sem hann les upp 150 ára gömul ljóð sem segir meira en nokkuð annað um það á hvaða tímaskeiði flokkurinn er staddur.

Eins og menn vita hefur fyrir tilverknað ríkisstjórnarflokkanna byggst upp öflugur fjármála- og verðbréfamarkaður á Íslandi. Bankarnir velta þúsundum milljarða, skila ríflega 200 milljarða hagnaði, veita þúsundum vinnu, hálaunuð störf fyrir háskólamenntað ungt fólk. Bankarnir eru í fararbroddi fyrir útrás íslenskra fyrirtækja erlendis.

Nú eru hins vegar blikur á lofti hvað þetta varðar vegna yfirlýsinga gömlu alþýðubandalagskommanna sem ráða ríkjum bæði í Samfylkingunni og í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Hv. þm. Ögmundur Jónasson hefur ítrekað lýst því yfir að það sé honum að meinalausu þótt bankarnir fari úr landi. Þannig megi jafna kjörin með því að koma öllu þessu hálaunaða fólki úr landi og hv. þm. Össur Skarphéðinsson hafði frammi um daginn lítt duldar hótanir um að bankarnir skyldu nú vara sig þegar hann af lítillæti sínu væri orðinn hæstv. fjármálaráðherra. Það eru því blikur á lofti og það er óhjákvæmilegt að ræða um stöðu og starfsöryggi fjármálafyrirtækjanna áður en þingið fer heim á næstu dögum. Það verður að liggja ljóst fyrir hvort aðrir hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar ætli að styðja þá félaga, hv. þm. Ögmund Jónasson og Össur Skarphéðinsson í þessum efnum.