framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Virðulegi forseti. Ég taldi mig hafa farið nákvæmlega yfir þetta. Allar þjóðir eru með stuðning við landbúnaðinn. Allar þjóðir eru með útflutningsstuðning þó að það sé ekki kallað útflutningsstuðningur.
Virðulegi forseti. Ef menn telja t.d. að Evrópuaðferðin sé betri en sú aðferð sem við erum að nota, telja menn það að við förum að láta ríkið kaupa upp t.d. sauðfjárafurðirnar, kindakjöt, við það að verðið fari niður fyrir eitthvert lágmark? Halda menn að það sé ódýrara fyrir ríkið? Halda menn að það sé betri aðferð?
Ég er sannfærður um það, virðulegi forseti, að sú aðferð að fara Evrópuleiðina er miklu verri og miklu kostnaðarsamari en sú leið sem við erum að fara. Í öðru lagi nefndi ég dæmi um hvernig Bandaríkin og Kanada standa sig. Þar eru menn með þessi víkjandi lán sem eru auðvitað ekkert nema styrkir. Ég er viss um að það er miklu óhagstæðara að gera þetta eins og þeir eru að gera heldur en við þó að það séu ekki kallaðir styrkir hjá WTO. Það eru ekki kallaðir styrkir en það eru stórkostlegir styrkir.
Þess vegna segi ég það að sú aðferð sem við höfum notað er eðlileg og hún hefur reynst vel. Ég tel það óvarlegt miðað við þær markaðskannanir og markaðsspár sem hafa verið gerðar að setja ekki þennan öryggisventil inn.
Svo segir hv. þingmaður að við getum þá gripið til þess seinna. Það er ekkert víst að við getum gripið til þess seinna. Ef ekki þarf á því að halda þá er það kostnaðarlaust að hafa það inni. Ef á því þarf að halda þá er það þar og kemur þá til nota. Mér finnst þetta mjög skýrt og ég skil ekki af hverju menn geta ekki fallist á svo einfalda hluti eins og mér finnst þetta vera.