framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Hæstv. forseti. Ég kann heldur ekki við það þegar hv. þingmaður fer með rangfærslur hvað embættismenn varðar. Það hefur enginn í landbúnaðarráðuneytinu verið að tala um að styrkirnir væru að fara út. (Gripið fram í.) Hins vegar hefur verið sagt að sá stuðningur sem kallaður er beinn stuðningur og er framleiðsluhvetjandi muni verða að lækka jafnvel um helming þegar þetta tekur gildi. Sauðfjársamningar okkar eru á vettvangi WTO kallaðir grænir samningar. Þegar útflutningsskyldan er farin út, sem hefur verið að angra þann samning, verður hann enn grænni en hann var áður og líklegri til að hafa þann frið.
Ég vil bara bera til baka að mínir menn hafi verið að tala um að styrkir væru að fara út. Það er ekki rétt. (EOK: Þeir eru að fara.) Hins vegar er rétt að stuðningsfyrirkomulag í Evrópu og víðar er að breytast, færast meira í grænt horf og óbeina styrki sem eiga ekki að koma við framleiðsluna. (Forseti hringir.) Það er hárrétt en ég læt nú þessum deilum við vin minn, hv. þm. Einar Odd Kristjánsson, lokið.