framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Herra forseti. Við vitum að bændum var stillt upp við vegg hvað þetta varðar. (Landbrh.: Rangt.) Ég leyfi mér að vitna í orð hæstv. landbúnaðarráðherra frá í gær, í andsvari við mig. Hann segir, með leyfi forseta:
„Ég hringdi í Jóhannes Sigfússon, Harald Benediktsson og Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu og skýrði þeim frá því að óhjákvæmilegt væri af lagatæknilegum ástæðum og ýmsum öðrum ástæðum að hafa þetta sólarlagsákvæði í samningnum sem um hefði verið samið til þess að þurfa ekki að taka búvörulögin upp haustið 2008.“
Ég velti reyndar fyrir mér af hverju hæstv. ráðherra hringdi ekki líka í þær tvær konur sem voru í samninganefndinni, þær Jóhönnu Pálmadóttur og Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur. Ráðherra taldi nóg að hringja (Landbrn.: Þetta er ómerkilegt.) í þessa þrjá karlmenn. (Landbrn.: Þetta er ómerkilegt.)
Ég tel að heiðarlegra væri fyrir hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) að biðjast bara afsökunar á að komast ekki lengra með samninginn.