breyting á XVIII. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Hér er til umræðu tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2006, um breytingu á XVIII. viðauka (Öryggi og hollustuhættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti kynjanna) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Martin Eyjólfsson og Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Bjarnheiði Gautadóttur frá félagsmálaráðuneyti.
Innleiðing tilskipunar þessarar kallar á lagabreytingar og samkvæmt upplýsingum sem nefndin hefur aflað er gert ráð fyrir að gera þurfi breytingar á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og að lagafrumvarp verði lagt fram innan tíðar en frestur til að innleiða efni tilskipunarinnar er til 30. apríl á næsta ári.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.