umhverfismengun af völdum einnota umbúða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og einlægan áhuga á málefninu sem er mikilvægt. Það er skemmst frá því að segja að það er ákveðið flækjustig í þessu sem er til komið vegna þess, eins og þingheimur man, að þegar kom að lækkun á virðisaukaskattinum þá ákváðu menn að láta það kerfi sem er til staðar varðandi áfenga drykki halda sér. Það þýðir að virðisaukaskatturinn er áfram 24% á áfengum drykkjum.
Í stuttu máli gengur þetta út á að ákveðið skilagjald er sett á viðkomandi dollur, kerfið var hér og þess vegna er þetta til komið. Síðan kemur virðisaukaskattur ofan á það og hann er endurgreiddur. Þegar virðisaukaskatturinn er lækkaður úr 24% í 7% þá er það lægri upphæð og þar af leiðandi eru menn að hækka skilagjaldið þannig að þetta kom í sama stað niður.
Eftir standa áfengisdósirnar. Það er enginn munur á dósum hvort þær eru undir bjór eða kók eða hvað annað. Það er mat Endurvinnslunnar að þar af leiðandi sé ekki hægt að fara að taka það eitthvað sérstaklega út úr þar sem um er að ræða alveg sömu vörurnar, því fara þær á sama stað og unnar eins o.s.frv.
Það þýðir að það munar 16–20 millj. kr., ef ég man rétt, sem munu þá skilast í ríkissjóð ef áætlanir ætla að ná fram að ganga.
Hins vegar er, svo því sé algjörlega til haga haldið, gert ráð fyrir því að endurnýja þessi lög og ef ég man rétt þá er miðað við að það verði gert ekki síðar en 1. janúar 2008. Þess vegna vildu menn frekar tjalda til einnar nætur, ef þannig má að orði komast, og hafa þetta eins einfalt (Forseti hringir.) og það gæti orðið frekar en að fara að breyta þessu í grundvallaratriðum.