veiðar og vinnsla erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi.
Virðulegi forseti. Já. Ég tek undir þetta. Það verður að koma í ljós hvort við þurfum að beita klippunum eða ekki. En við erum náttúrlega að tala um að skerpa og hafa styrkari og skýrari heimildir til að grípa til aðgerða gegn þessum veiðum.
Það sem er nýtt í þessu líka er að við erum að koma í veg fyrir aðgengi þessara skipa með ýmiss konar þjónustu hvort sem hún er veitt í íslenskri höfn, innan fiskveiðilandhelgi Íslands eða utan hennar. Það held ég að sé líka hluti af því umhverfi sem við erum að reyna að styrkja og ég tel frumvarpið mjög mikilvægt í því.