framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Frú forseti. Ég hef mikla trú á íslenskum bændum og mikla trú á íslenskum landbúnaði. En því miður hefur sú stétt búið við niðurnjörvað sovétkerfi í hálfa öld eða lengur. (Landbrh.: Það er rangt.) Það heldur bændum niðri og hefur skert lífskjör þeirra mjög verulega.
Á síðustu árum hefur reyndar eitthvað losnað um þetta en þessi búvörusamningur er hluti af hinu gamla kerfi. Hann er líka slæmur fyrir neytendur vegna þess að verðið (Gripið fram í.) fyrir landbúnaðarvörur er of hátt. Hann er líka slæmur fyrir skattgreiðendur því að þeir borga helling með þessu kerfi. Ég segi nei. (HHj: Hvaða ríkisstjórn gerir þetta?)