133. löggjafarþing — 92. fundur,  16. mars 2007.

breytingar á ýmsum lögum um neytendavernd.

617. mál
[21:33]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem nauðsynlegt er að gera til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 frá 27. október 2004, um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd, en fyrir þinginu liggur nú frumvarp til laga um innleiðingu á þeirri reglugerð.

Breytingar frumvarpsins miða að því að tryggja að þau stjórnvöld sem fara með framkvæmd þeirra laga sem reglugerðin tekur til og tilnefnd hafa verið af Íslands hálfu sem lögbær stjórnvöld hafi þær heimildir sem gerð er krafa um í reglugerðinni. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja eftirfylgni við lagaákvæði á sviði neytendaverndar, einkum þegar um viðskipti yfir landamæri er að ræða.

Nefndin leggur til að þær heimildir Neytendastofu til vettvangsrannsókna, sem mælt er fyrir um í frumvarpinu, nái einnig til heimildar Neytendastofu til að leggja hald á gögn sem kunna að finnast við vettvangsrannsókn. Þá leggur nefndin til að nokkur ákvæði falli brott þar sem þau hafa verið færð yfir í annað frumvarp sem hún hefur haft til meðferðar (378. mál).

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

Á eftir orðunum „lög þessi taka til“ í 1. efnismgr. 1. gr. komi: og lagt hald á gögn.

II.–IV. kafli falli brott.

Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Birkir J. Jónsson, Lúðvík Bergvinsson, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ásta Möller, Sæunn Stefánsdóttir og Ögmundur Jónasson.