losun gróðurhúsalofttegunda.
Frú forseti. Varðandi kolefnislausu rafskautin þykist ég vita að íslensk álfyrirtæki taka þátt í þessari alþjóðlegu þróun og þeirri tilraunastarfsemi sem fer nú þegar fram, hefur ekki tekist sem skyldi, með því að þróa þessi skaut og með það að markmiði að draga úr gróðurhúsalofttegundum.
Að öðru leyti vil ég segja að ég get á margan hátt tekið undir með Þorkeli Helgasyni og þessari framtíðarsýn. Þetta eru takmörkuð gæði losunarheimildirnar og við hljótum með því að markaðssetja þetta lengra fram í tímann. Ef við horfum lengra fram í tímann, ég tel okkur vera að taka fyrstu skrefin í þá áttina, hljótum við jafnframt að vera með því að beita eins konar hagrænum stjórntækjum á álverin til þess að þau leggi meira á sig til að þróa hvers konar tækni, bæði álbrennslan og hvers konar önnur stóriðja, til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. En hvað umhverfisráðherra hér hefur sérstaklega gert við tiltekin tvö álver? Það hefur svo sem ekki verið mikið en ég veit að þetta eru alþjóðleg fyrirtæki og á vegum þeirra er verið að leitast við að þróa þessa tækni með það að markmiði að draga úr losuninni og verðlagningin á kvótanum, losunarheimildin, markaðssetningin, hlýtur að leiða til þess að þau leggja meira á sig í þá veru.