heilbrigðisþjónusta.
Hæstv. forseti. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir fagráðum til að styrkja framkvæmdastjóra stofnana og það er gert ráð fyrir að fagráðin séu við háskóla og á kennslusjúkrahúsum. Ég legg til að því verði bætt við að þau verði einnig á svæðisbundnum heilbrigðisstofnunum og heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ég mismælti mig áðan þegar ég sagði að þetta væri eingöngu fyrir stjórnendurna, þetta er til að efla faglegt starf á þessum sviðum á stofnunum og þessi breyting er til þess að styrkja það og hafa það á þessum stærstu heilbrigðisstofnunum landsins.