133. löggjafarþing — 94. fundur,  17. mars 2007.

svar við fyrirspurn – frumvarp um vátryggingarsamninga.

[18:24]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er mjög vel við hæfi á þessum síðasta degi þingsins á kjörtímabilinu að ræða svar fjármálaráðherra um skerðingu á barnabótum þar sem ráðherrann staðfesti sjálfur það sem við höfum ítrekað haldið fram í Samfylkingunni, þá gífurlegu skerðingu sem orðið hefur á barnabótum á kjörtímabilinu sem er um 10 milljarðar frá árinu 1995 til 2005 og staðfest er í þessu svari. Þó að verið sé að bæta þetta á síðasta ári og þessu ári þá er eingöngu verið að skila litlu til baka af þeim tíu milljörðum sem hafa verið teknir af barnafólki, kannski innan við 20%.

Það sem verra er er líka það að núverandi ríkisstjórn hætti að greiða ótekjutengdar barnabætur nema til 7 ára aldurs en þegar hún tók við á árinu 1995 voru barnabætur greiddar til 16 ára aldurs. Það er auðvitað hrein skömm vegna þess að þeir sem eru með börn í grunnskóla vita að kostnaðurinn við börn í grunnskóla er ekkert minni en við börn á leikskólaaldri en þá er hætt að greiða barnabætur. Þetta er auðvitað hrein skömm fyrir ríkisstjórnina og þetta er minnismerki um svik stjórnarflokkanna við barnafjölskyldur, ekki bara í þessu máli heldur varðandi fæðingarorlofsgreiðslur, sem hafa verið verulega skertar á kjörtímabilinu og eru ekki 80% af launum heldur 72–74%.

Þetta eru líka svik við fjölskyldur að því leyti að því var heitið hér á þingi árið 1991 í samræmi við þingsályktunartillögu frá Alþingi að heildarstefna yrði mótuð í málefnum barna og unglinga og það hefur verið svikið þrátt fyrir að fyrir lægi vilji Alþingis í samþykktri þingsályktunartillögu að það verði gert. Ríkisstjórnin hefur farið illa með barnafjölskyldur (Gripið fram í.) og það verður sannarlega bætt (Forseti hringir.) þegar núverandi ríkisstjórn fer frá og við tekur ríkisstjórn okkar jafnaðarmanna.