133. löggjafarþing — 94. fundur,  17. mars 2007.

svar við fyrirspurn – frumvarp um vátryggingarsamninga.

[18:28]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir að menn hafi verið að bæta í ótekjutengdar barnabætur á undanförnum árum. Staðreyndin er sú að ef við lítum á ótekjutengdu barnabæturnar fyrir árið 1991 voru þær, miðað við verðlag ársins 2003 5,3 milljarðar en á árinu 2003 1 milljarður rúmur. Menn eru því að bæta í eitthvað sem hafði verið lækkað verulega. Menn geta deilt um það hvernig samsetningin eigi að vera á milli tekjutengdra og ótekjutengdra barnabóta en þetta er staðreyndin og ég tek undir orð hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur hvað þetta snertir. (JóhS: … til þessarar breytingar, verkalýðshreyfingin.) Það er rétt.

Síðan er náttúrlega athyglisvert þetta frammíkall hæstv. fyrrverandi iðnaðarráðherra og núverandi utanríkisráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, sem væri stolt af því að taka þátt í einkavinavæðingarumræðunni á komandi vikum og fagnaði því að það yrði gert. Ég skal svo sannarlega sjá til þess að fögnuður hennar geti orðið mikill hvað það snertir. En ég held að það sé mjög mikilvægt að kjósendur átti sig á þeim stórfelldu svikum og blekkingum sem hér hafa verið í reynd afhjúpaðar, að á samstarfstíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa barnabæturnar verið stórlækkaðar þótt núna undir kosningarnar sé verið að bæta örlítið í til þess að blekkja kjósendur til fylgilags við þessa flokka að nýju.